Bananar eru framúrskarandi
30. október, 2024
Bananar eru í hópi framúrskarandi fyrirtækja á lista Creditinfo 2024.
Í fjórtán ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Bananar hafa unnið það afrek að vera framúrskarandi öll þau ár sem viðurkenningin hefur verið veitt.
Meginmarkmið greiningar Creditinfo er að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og eru því í hópi þeirra sem er best treystandi í viðskiptum á Íslandi.
“Við hjá Bönunum erum afar stolt af þessari viðurkenningu sem eru til merkis um þá miklu og góðu vinnu sem starfsfólk okkar sinnir á hverjum degi,” segir Jóhanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri Banana sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins í Hörpu.